Það vantaði ekki upp á dramatíkina á Couture sýningu Christian Dior sem fór fram nú á dögunum í París…
…Kjólarnir voru brjálæðislega stórir og litríkir eins og þeir eiga að sér að vera hjá Dior en hárið og makeupið var ekki síður skemmtilegt. Risa krulluhárgreiðslur með glimmer-hárskrauti og blár, grænn og gulur augnskuggi var eitthvað af því sem sjá mátti. Ég rakst á þessar skemmtilegu myndir af fjörinu baksviðs sem sýna meðal annars förðunarfræðinga og hárgreiðslufólk vinna hörðum höndum við að láta allt smella saman.
Smelltu á myndirnar fyrir neðan til að sjá litadýrðina:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.