Þegar nær dregur jólum og áramótum fara flestar stelpur í kjóla eða ‘outfitts’ pælingar og plana í huganum hverju á að klæðast í öllum boðunum og partíunum…
…En mér finnst líka sérstaklega gaman að spögulera í hátíðarförðun og hári því þá má taka allt skrefinu lengra! Vúhú…meira af öllu þessu fína eins og til dæmis glimmeri, gloss, litum, augnhárum og hári! Persónulega þá finnst mér enginn tími betri til að nota glimmer heldur en á áramótunum en Make Up Store selur glimmer og glitrandi steina í öllum regnbogans litum. Svo er gaman að toppa hátíðarförðun með flottu setti af ‘feik’ augnhárum…fyrir þennan 190% glamúr.
Þetta er tíminn til að vera smá athyglissjúkur! Hér fyrir neðan er smá innblásturs albúm því það getur verið svo gott að skoða myndir ef maður er hugmyndasnauður.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.