Það hafa örugglega flestir orðið varir við forsíðu V magazine þar sem Kate Moss og Rihanna sameinuðust fyrir framan myndavélina…
…Það var mikið um bert hold í myndaþættinum sem fylgdi greinilegt að kynþokki var þemað! Förðunin var mjög dökk en það er hin breska Charlotte Tilbury sem á heiðurinn af þessu flotta útliti sem stelpurnar skörtuðu.
Hér kemur kennslumyndband frá sjálfri Charlotte þar sem hún sýnir okkur hvernig hún framkallaði þessi dökku og seiðandi augnförðun.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_LA3GV6Ohrw[/youtube]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.