Ein vinæslasta tískubylgjan í förðunarheiminum fyrir veturinn 2013 er rauður aungnskuggi…
…Þetta hljómar kannski ekki vel í eyrum margra en rauðleitur augnskuggi fer í rauninni flestum vel, þá aðallega þeim sem hafa blá eða græn augu.
Rauð- og koparleitir augnskuggar voru til dæmis áberandi á tískupöllum Gucci, Givenchy og Altuzzara þegar haustlínur ársins voru frumsýndar nýverið.
Þær sem hafa áhuga á að prufa rauðleita augnskugga í vetur ættu að skoða vöruúrvalið hjá MAC eða NYX. Galdurinn á bakvið fallega rauða augnförðun er þá auðvitað að finna rétta litinn.
Tilvalið fyrir þær sem vilja breyta til og vera öðruvísi!
__________________________________________________
Flestar myndir voru fengnar að láni frá Style.com.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.