Rauðar varir eru einstaklega fallegar á veturnar og geta gefið okkur öllum klassískt og flott útlit.
Það sást mikið af kirsjuberjarauðum vörum í bland við hreina og fallega húð, og látlausa augnförðun, á sýningarpöllunum fyrir haust/vetrartískuna 2012.
Ábending:
Til að rauði varaliturinn haldist sem best á er gott að setja örlítinn hyljara yfir varirnar, móta þær með blýanti og fylla svo að lokum upp í með varalitnum. Síðan tekurðu þurrku og “dúmpar” yfir litinn eða klemmir varirnar laust saman yfir þurrkuna til að fjarlægja auka olíur í litnum. Þá eru einnig minni líkur á að varaliturinn smyrjist út um allt.
Flottir rauðir varalitir fyrir veturinn:
Frá MAC í Lady Danger
Bobbi Brown í Red #10
Rouge varalitir frá Dior.
Finndu þinn uppáhaldslit og vertu klassísk í vetur!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com