Upp á síðkastið hef ég verið rosalega innblásin af náttúrulegri glamúrförðun. Þessi förðun hefur verið svolítið í tísku en þetta er samt sem áður svona klassísk förðun sem virkar alltaf.
Áherslan er lögð á að ýta undir okkar náttúrulegu fegurð en gera okkur pínu skvísulegar í leiðinni án þess að það sé of mikið. Náttúrulegir litir, ljómandi húð, hlýja og falleg augnhár. Þessi förðun klæðir nánast alla!
Hér koma nokkrar hugmyndir af vörum sem fullkomna þetta lúkk:
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com