Þessi flotti myndaþáttur birtist í Russh magazine á dögunum en hann gefur góða mynd af því hvernig hægt er að leika sér með ‘mettalic’- eða málmáferð í förðun…
…Silfurlitur er áberandi í gegnum myndaþáttinn en hann er ýmist notaður á allt augnlokið eða í innri augnkrókinn. Silfruðu fötin og skartið fullkomna svo lúkkið sem er með smá rokk-ívafi.
Það er förðunarfræðingurinn James Boehmer sem á heiðurinn að förðununni og ljósmyndarinn á bakvið myndirnar er Stephen Ward.
_________________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.