Nú þegar styttist í árslok eru eflaust margar konur farnar að leiða hugann að áramótaförðuninni og dressinu…
…Eitt af því sem mér finnst alltaf eiga vel við yfir hátíðirnar er glimmer, pallíettur og semilíusteinar. Það er ekki oft á ári sem mjög áberandi förðun á vel við og þess vegna eru margar sem nýta tækifærið á áramótunum og ganga skrefinu lengra þegar kemur að förðun.
Hér fyrir neðan er samansafn af fallegum myndum sem sýna ýmist augnlok, varir eða hár þakið glimmeri og glitri, þær gætu veitt þér innblástur fyrir áramótin. Allar myndirnar koma af Pinterest.
Fyrir þær sem eru að hugsa um að fjárfesta í glimmeri eða glitrandi augnskugga fyrir áramótin þá mæli ég með að kíkja á úrvalið í MAC, Make Up Store og Inglot.
Gleðilegt nýtt ár!
_____________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.