Christian Dior veldur seint vonbrigðum þegar kemur að skrautlegri og mikilfenglegri förðun!
Í sýningu hátískulínunnar fyrir sumarið 2013 mátti sjá varir í rauðum og bleikum lit… þaktar Swarovski kristöllum!
Ekki nóg með að varirnar væru ‘öðruvísi’ heldur voru augun það líka en þau voru skreytt með álímdum eyeliner.
Það er förðunarfræðingurinn Pat McGrath sem á heiðurinn af þessari snilldar förðun.
Maður getur aðeins rétt ímyndað sér hversu mikil vinna liggur á bak við hvert og eitt andlit.
Fullkomnun!
___________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.