Hérna kemur hrikalega flott kennslumyndband frá Pixiwoo sem sýnir þér hvernig þú framkallar þessa áramótalegu förðun…
…Það var söngkonan Leona Lewis sem var innblásturinn af þessu ‘makeuppi’ en hún kom fram í breska XFactor á dögunum og vakti mikla athygli fyrir fallega förðun. Hér notar förðunarfræðingurinn Nic silfrað glimmer á augnlokin og skyggir augað á 60’s-legan hátt. Útkoman er æði!
Fyrir neðan myndbandið á Youtube má sjá nákvæman lista yfir allar þær vörur sem Nic notar til að skapa þetta ‘lúkk’.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=8hvJTIq9zuU&list=PLp3X8qeGtLO8IIpcLXMIYHnoLhAMpXNup[/youtube]
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.