Sumarið verður bæði litríkt og skemmtilegt í förðun. Flott trend, allt frá neonlitum upp í flottar skyggingar líta dagsins ljós.
Hér eru hugmyndir að nokkrum útfærslum og vörum sem verða heitar í sumar…
Þykkar augabrúnir
Mælt er með því að við látum plokkarann alveg eiga sig í sumar og leyfum brúnunum að vaxa. Þetta útlit hefur undanfarið ágerst og er nú vinsælla en nokkru sinni fyrr!
Prófaðu: Natural Brow Shaper frá Bobbi Brown. Glært eða litað gel sem heldur brúnunum snyrtilegum.
Sterkir litir/ ‘Color Pop’
Sterkir litir á augum/vörum/kinnum verða áberandi í sumar. Munið bara að hafa litinn á einum stað í einu, svo útlitið verði ekki of yfirgnæfandi.
Prófaðu: Ombres 5 Lumieres sumarpallettuna frá Yves Saint Laurent. Skærir litir í öllum regnbogans!
Náttúrulegt útlit
Er alltaf vinsælt á sumrin og sérstaklega núna! Hugaðu vel um húðina og passaðu að nota farða sem passar við þinn náttúrulega húðlit. Ekki heldur fara yfir í of þungar farðanir ef þú vilt ná þessu útliti fram. Húðin á að skína í gegn og virka slétt og heilbrigð.
Prófaðu: BB Cream frá Esteé Lauder eða Clinique!
Skyggingar
Það er alltaf fallegt að vera með hóflegt sólarpúður, og það er snilld að nota það til að skyggja kinnbein og kjálka.
Prófaðu: Hey Sailor! sólarpúðrin frá MAC.
Kíktu á myndirnar fyrir neðan og finndu þitt uppáhaldstrend!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com