Bobbi Brown gaf út nýja línu á dögunum sem ber nafnið Desert Twilight. Hún samanstendur af fallegum, fjölnota snyrtivörum sem veita manni flott daglegt útlit og möguleika á því að breyta yfir í kvöldförðun með lítilli fyrirhöfn.
Í Desert Twilight eru meðal annars…
8 lita augnskuggapalletta
Æðislegir litir sem samanstanda af gráleitum og bleikum tónum með einum dekkri lit, sem hægt er að nota t.d. í augnlínu eða skyggingu. Litirnir virka fyrir öll tilefni og pallettunni fylgir tvöfaldur eyeliner/augnskuggabursti.
Kremaugnskuggi “Long- Wear” í litnum Blue Moon
Túrkislitaður kremaugnskuggi sem haggast ekki á augnlokinu. Líka hægt að nota hann sem flottan eyeliner.
Gel Eyeliner “Long- Wear” í litnum Twilight Night Shimmer Ink
Gel-eyelinerinn er einn af vinsælustu vörunum hjá Bobbi Brown, og þessi tiltekni litur er gráleitur plómulitur með léttri sanseringu.
Sólarpúður/Kinnalitur, “Powder Bronzer& Blush Duo”
Tvöföld pakkning sem inniheldur bæði sólarpúður og kinnalit. Þú getur notað báða liti saman eða sitthvorn fyrir fallegan ljóma og smá lit í kinnarnar. Mjúkir litir sem endast vel. Innheldur litina Pink Peony og Bahama Brown.
Kremaður kinna- og varalitur
Kemur í lítilli, handhægri túbu og hægt að stjórna magni vel. Gefur hóflegan en flottan lit, annaðhvort í kinnar eða á varir. Tveir litir eru í boði, Honeysuckle og Evening Rose.
Varaglossar
Koma í þremur tegundum; High Shimmer, Shimmer og Lip Gloss. Sex litir eru fáanlegir, flestir eru frekar ljósir en þó eru einhverjir berjalitir inn á milli. Tilvaldir í haustfarðanirnar!
Naglalökk
Í tveimur litum, Twilight Night sem er frekar dökkur plómulitur og Turquoise sem er fallegur túrkislitur. Lökkin eru ótrúlega auðveld í ásetningu og haldast vel á nöglunum.
Burstasett, “Mini Brush Set”
Inniheldur 4 bursta úr mjúkum geitahárum sem eru sérhannaðir til þess að endast og veita sem flottasta útkomu á förðun. Sá stærsti er kinnalita/púðurbursti, svo eru tveir augnskuggaburstar og einn varabursti. Fullkomið í snyrtibudduna!
Ég mæli hiklaust með því að þú skoðir úrvalið í þessari flottu sumar/haustlínu! Bobbi Brown vörurnar eru seldar í Lyf&Heilsu Kringlunni og í Hagkaup Smáralind.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com