Í kvöld er tækifærið til þess að skína eins og stjarna. Glimmer naglalakk, glimmer á varirnar eða glimmer á og í kringum augum!
Þá er betra að setja annað hvort varir eða augu í fókus en áberandi augnmálning kallar á daufari varir og öfugt. Glamúr förðun verður allsráðandi og ekki hika við að fara út fyrir þægindahringinn. Hér eru nokkrar förðunarhugmyndir. Kveðjum árið með stæl og gleði. Njótið kvöldsins glitrandi eins og sannar drottningar.
GLEÐILEGT NÝTT ÁR !!
Vatnsberinn Marín Manda fæddist í Danmörku, er alin upp á Íslandi en hefur þó mestmegnis búið í Kaupmannahöfn á fullorðinsárum. Hún hefur starfað við ýmislegt í gegnum tíðina: markaðsmál, blaðamennsku, útvarp, hönnun og sölu. Hún hefur rekið eigin verslun og er núna í fullu námi í nútímafræðum.
Marín Manda elskar að ljósmynda, hjóla með vindinn í andlitið, þræða nytjamarkaði, skoða innanhúshönnun, ferðast á framandi slóðir og svo er hún nýbúin að uppgötva jóga. Hún er ferðalangur, mikil draumórakona og stundum einum of einlæg. Hún er líka mamma, á tvö dásamleg börn sem heita Alba Mist og Bastian Blær.
Mottó: Kýldu á það!