Það er ótrúlegt hvað eyeliner getur gert fyrir heildarlúkkið í förðun, hvort sem hann er svartur, blár eða í öðrum litum þá gerir hann mikið fyrir augun.
Hér að neðan eru nokkrar hugmyndir að eyeliner “lúkki” fyrir augun.
Vængir og smá lína fyrir neðan. Þetta lúkk er þekkt hjá Adele og Twiggy en aðeins þykkari og meira áberandi eyeliner en þær eru og voru vanar að vera með. Frábært útlit fyrir skemmtilegt kvöld í miðbænum.
Þráðbein lína getur verið svolítið smart, öðruvísi og fyrir þær sem þora.
Svolítið klesstur, þykkur og í anda smokey eye er töff, berðu þykka línu af eyeliner á augnlokið og klesstu hann síðan með puttunum eða pensli, smart og elegant.
Þykk lína að neðan er svolítið töffaraleg. Það er samt ekki sama hvaða litur er notaður fyrir þennan eyeliner því að blár eyeliner getur hreinlega minnt á glóðurauga! Brúnir og hlýjir tónar eru flottir hér.
Hér er eyelinerinn þykkur og allan hringinn og sterkar varir með. Svolítið öðruvísi en samt pínu töff.
Vel vængjaður eyeliner er mjög flottur, Sophia Lauren var þekkt fyrir þetta útlit og það er um að gera að æfa sig að gera svona eyeliner því þessi getur verið svolítið trikkí, góður blýantur eða jafnvel penni er alveg málið hérna. Það má líka alveg gera þennan eyeliner með öðrum lit en svörtum til dæmis dökkbláum eða fjólubláum.
Þessi er pínu öðruvísi og Lady Gaga hefur sést með svona förðun, ég er ekki alveg viss hvort að ég myndi fara út með svona förðun en þetta er klárlega fyrir þær sem þora!
Svart og hvítt eru flottar andstæður og hér sést greinilega hvað hvíti eyelinerinn gerir mikið fyrir förðunina innst í augnkróknum, mjög flott með smokey eye förðun.
Tvöföld lína, hér er cateyliner settur fyrir neðan og honum síðan fylgt með annari línu fyrir ofan, smart og öðruvísi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig