Mig langar að deila með ykkur vörunum sem eru á óskalistanum frá förðunarkeðjunni Sephora þessa stundina. Ég get eytt endalausum tíma inn á Sephora.com og skoðað og skoðað.
Ég er alltaf sjúk í allt sem fæst ekki hér heima, það er alveg ótrúlegt! Þetta er það sem mig bráðvantar þessa stundina:
Huda beauty augnhárin
Augnhárin hennar Hudu eru geðsjúk. Ég elska að fylgjast með þessari skvísu, en hún er bjútígúru sem er orðin gríðalega vinsæl um allan heim. Augnháralínan hennar er nýdottin inn á Sephora. Mig langar mest í Scarlett týpuna.
Kat Von D Lock it farðann
Mig hefur lengi langað að prófa þennan farða, en hann þekur víst einstaklega vel. Kat Von D er annar förðunarfræðingur sem gaman er að fylgjast með, – hún er einnig með sína eigin förðunarlínu sem seld í Sephora.
Farða droparnir frá COVER FX
Droparnir eru í raun litadropar og virka þannig þeim er bætt annaðhvort út í kremið, meikið eða serumið og eru þeir hannaðir til þess að byggja upp lit. Því fleiri dropa sem þú lætur út í, því betri hulu færðu (coverage).
Spurning að fá einhvern til að hendast í Sephora?!
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com