Ég kíki reglulega á Pinterest vefinn, bæði mér til skemmtunar og til að fá hugmyndir og innblástur fyrir vinnuna mína við förðun.
Það er hægt að skoða svo margt sniðugt og skemmtilegt hvernig leitin er sniðin eftir áhugasviði hvers og eins. Mitt uppáhald eru farðanir og tískutengt efni. Mig langar af því tilefni að deila með ykkur fallegum myndum af vinsælum förðunarlúkkum sem birst hafa á Pinterest.
Smoky “kisuaugu”
Sterkar brúnir
Gyllt og sólbrún húð
Hvítur eyeliner inn í augnhvarma
Brúnn shimmer augnskuggi
Krem kinnalitur
Létt smoky
Bronsuð húð með sólarpúðri
Skærar varir
Falleg og áberandi augnhár
Náttúrulega rauðar varir
Glimmer smoky
Fersk húð og náttúrulegur farði
“Kisu-eyeliner”
Dökkar rauðar varir
Ég er hjartanlega sammála örðum “pinnurum” með þessi förðunarlúkk, þau eru algjört æði.
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com