Ég svipaðist um eftir flottum trendum sem eiga eftir að koma sterkt inn á árinu 2012, það er svo spennandi að gera eitthvað nýtt!
Skærar neglur
Skemmtilegt, áberandi og setur punktinn yfir i-ið!
Stelpulegt, “bouncy” tagl
Ótrúlega auðvelt að ná þessu fram eins og við vitum, og nú er það inni.
Sjokkerandi varir
Í öllum litum. Hægt að tóna þær niður en það lítur alltaf vel út að vera með flottan varalit. Gaman að þessu og frískar upp á alla 🙂
Nýtt ár býður upp á nýtt útlit og skemmtilegar breytingar, allar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi sem þær langar til að prufa!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com