Hérna færðu smá sýnishorn af því sem koma skal í förðun fyrir sumarið 2012. Ekki seinna en vænna að kynna sér hvað verður ‘inn’ ;)…
…Margt mjög flott og frumlegt í gangi og fjölbreytnin er svo skemmtileg. Rauðar varir við liðað hár eða dökkt smokey við rennislétt og blautt hár, allt leyfilegt! Hér fyrir neðan er albúm sem sýnir nokkur uppáhalds sumar-2012 lúkkin mín!
Myndir frá sýningum Fendi, Giles, Gucci, Alexander Wang, Anna Sui og Donna Karan.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.