Golden Gloss er nýr, ótrúlega girnilegur gloss frá Yves Saint Laurent. Það sem gerir hann ennþá eftirsóknarverðari er að það eru ekta 24 karata gullagnir í honum (0,2‰), þannig að það má segja í fullri alvöru að hann sé hverrar krónu virði!
Glossinn kemur í hvorki meira né minna en 31 lit, og mínir uppáhalds eru Golden Lavender (fölfjólublár) og Golden Pink (fallega bleikur). Nýju jólalitirnir eru þrír og heita White Gold Quartz (perlulitaður), White Gold Topaz (skærbleikur), og White Gold Amethyst (berjalitaður).
Fyrir utan það að vera sjúklega fallegur, að þá er ótrúlega þægilegt að vera með hann á sér. Hann rakafyllir varirnar og innheldur hinar nærandi Nigellaolíu og Carmelinolíu. Þar að auki verndar hann varirnar gegn öldrun!
Golden Gloss er hægt að nota einan og sér eða yfir varalit til að fá meiri lit. Hann kemur í fáguðum umbúðum með gylltu loki og þægilegum bursta á endanum.
Ég mæli eindregið með því að þú prófir þennan gloss, ég veit að þú sérð ekki eftir því!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com