Transformers leikkonan og fyrirsætan Megan Fox er alveg gullfalleg og nánast óþekkjanleg í auglýsingaherferð Giorgio Armani fyrir snyrtivörulínu Armani -Beauty Cosmetics.
Megan Fox hefur verið afar vinsæl fyrirsæta hjá Giorgio Armani undanfarið en er helst þekkt í Evrópu fyrir að leika yfirleitt kynbombuhlutverkin enda þykir hún ein af kynþokkafyllstu konum heims.
Megan Fox er mun þroskaðri og þokkafyllri eftir að förðunarteymi Armani hefur farið höndum um hana og nú þegar það er komið haust og veturinn fer að ganga í garð, stendur rauði varaliturinn helst upp úr. Rautt er samt ekki bara rautt því margir litatónar eru í gangi: dökkrauður, berjarauður, brúnrauður og svo mætti lengi telja. Rauður varalitur fer flestum konum vel enda um að gera er að finna sinn “rauða lit”.
Bláir augnskuggar, “smokey” augu og eyelinerinn verður áfram áberandi í förðunartísku á næstu misserum en einnig verður “nude” lúkkið áfram í tísku þannig að hver og ein getur svo sannarlega fundið sinn stíl.
En hér eru dásamlegar förðunarmyndir af henni Megan Fox. Smelltu á mynd til að stækka.
Stutt viðtal af mun fágaðri Megan Fox.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.