Muniði eftir LED ljósunum sem þóttu óttalega töff fyrir nokkrum árum? Eða það var að minnsta kosti einhver að reyna að segja okkur að þau væru töff.
Japanir eru auðvitað búnir að finna allt upp og nú er það nýjasta að nota LED ljós í förðun. Þetta er nokkurs konar margnota eyeliner með led ljósum. Ljósabúnaðurinn bregst við þegar þú blikkar augunum þannig að áhrifin verða eins og þú sért disney bambi á sterum.
Myndir þú fá þér svona?
[youtube width=”480″ height=”390″]http://www.youtube.com/watch?v=N5484m-tCeA[/youtube]
Og eins og þið sjáið þá er þetta líka fyrir karlmenn:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.