Dudley O’shaughnessy (21 árs) er fyrrverandi hnefaleikakappi sem var uppgvötaður af NEXT og hefur verið að módelast síðan.
Hann hefur ekki verið mjög þekktur hingað til en Rihanna valdi hann til að leika kærastann sinn í myndbandinu við lagið “We found love”. Hversu góð vinna spyr ég? Velja sér kærasta eins og að kaupa sér bíl. NÆÆS!
Mikil heil ósköp er maðurinn fallegur! Ég slefa. Ég drukkna í augunum hans!! Búin að horfa á myndbandið örugglega 300 sinnum bara til að geta horft á hans fallega andlit (og líkaminn skemmir ekkert heldur).
Fyrir utan hvað hann er fallegur er myndbandið mjög kúl. Það segir sögu, elska andrúmsloftið , stíliseringuna og já ég elska lagið líka!
Dudley og Rihanna voru að slá sér upp eftir tökur á myndbandinu (Hversu fullkomið par??) en Dudley sagði fyrir nokkrum dögum að hann væri einhleypur og fílaði það vel.
Nokkrar myndir af namminu:
Hér má svo sjá myndbandið:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=tg00YEETFzg[/youtube]Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.