Í tilefni af færslunni hennar Stellu með brasíliskum fegurðardísum þá langaði mig að setja inn svona eins og 10 íslenskar fegurðar-valkyrjur sem allar hafa þetta “je ne sais quoi”...
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.