Ég er ástfangin… fullkomin bjálkakofi stór herbergi, fallegur brakandi viður, opinn arinn, mjúkir sófar til að lesa góða bók í, nægt rými til að halda góð matarboð með skemmtilgu fólki, draumkennt, stílhreint og einstaklega fallegt gamalt veiðihús -erfðagripur sem er í dag sumarhús heppinnar danskrar fjölskyldu.
Ekki amalegt að skreppa í bústaðinn í slökun og upplifa þessi fallegu rými -persónulega myndi ég þiggja að búa þarna allt árið um kring. Myndir úr hinu danska tímariti Bo Bedre.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.