Ooooo… ég bara varð að deila þessarri brúðkaupsupptöku með ykkur en hún er eitt sú gleðilegasta brúðkaupsupptaka sem ég hef lengi séð!
Er alveg að fíla nærmyndirnar af dansandi fótunum og ekki spillir gleðin í gestunum; svona eiga brúðkaup að vera full af gleði, gleði, gleeeði!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.