Það er ekki hlaupið að því að finna hagkvæma og vel hannaða fartölvutösku sem er líka smart.
Ég hef ekki fundið neina hér á landi sem mér líkar og fór því á netið til að finna mér réttu töskuna.
Ég vil helst að hún líti ekki út eins og fartölvutaska og rúmi líka fleiri hluti eins og snyrtibudduna, veskið og dagbók. Ég fann margar flottar frá 5 þús krónum og upp í svaka dýrar, en mér þykir Badgley Mishka taskan klárlega langflottust, hún fæst í Saks Fifth Avenue á $498 (tæpar 60 þús).
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.