Ég persónulega elska Urban Outfitters og bíð spennt eftir að komast næst af klakanum og í verslunardýrð stórborga heimsins.
Urban Outfitters er með margt skemmtilegt fyrir heimilið. Á heimasíðu þeirra má m.a finna guðdómlega flauel sófa, flott rúmföt, beikon-tannþráð (JÁ ég sagði beikon) og margt fleira skemmtilegt.
Það er mjög margt sem mig langar í frá þessari skemmtilegu verslun og þá helst flauelsófa í mustard lit. Mér finnst verðin alls ekki svo slæm, ekki útí hött að minnsta kosti þótt þetta sé ekki ódýrt.
Skoðið myndirnar…
heimasíða Urban Outfitters er www.urbanoutfitters.com
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.