Á eftir Clueless og The Wedding Singer er That Thing You Do! líklega eyddasta spólan í VHS skápnum hennar mömmu vegna stöðugs áhorfs míns á þessar myndir.
That Thing You Do! (1996) er um Guy Patterson (Tom Everett Scott), strák á tvítugsaldri sem býr í Erie í Pennsylvaníu og vinnur í raftækjabúðinni hjá pabba sínum og spilar á trommur sér til gamans. Einn daginn biður kunningi hans hann um að spila á trommur í hljómsveitinni hans í hæfileikakeppni í bænum, Guy samþykkir boðið og strákarnir vinna keppnina. Stuttu seinna eru þeir farnir að spila um öll Bandaríkin og lagið þeirra “That thing You Do” er að klifra upp Billboard listann.
Tom Everett Scott er nú ekki neitt sérstaklega þekkt nafn í dag…og var það kannski aldrei en það er nóg af þekktum leikurum að finna í þessari mynd og ber þá helst að nefna Tom Hanks sem skrifaði handritið af myndinni, leikstýrði henni og lék eitt af aðalhlutverkunum í henni. Þar að auki leika Liv Tyler (The Lord of the Rings), Steve Zahn (Reality Bites), Charlize Theron (Monster), Ethan Embry (Empire Records), Giovanni Ribisi (Avatar), Bryan Cranston (Breaking Bad), Rita Wilson (Sleepless in Seattle og eiginkona Tom Hanks), Colin Hanks (Orange County og sonur Tom Hanks) og Chris Isaak (söngvari: Wicked Game) í myndinni.
Þrjár ástæður fyrir því að þú VERÐUR að sjá That Thing You Do!:
1. Lagið
Okei kannski er ég kreisí en ég er ekki ennþá búin að fá leið á þessu lagi þó ég sé búin að horfa á myndina yfir hundrað sinnum (en lagið er spilað sjö sinnum í myndinni) og þó ég hafi átt lagið líka á kasettu í “gamla daga” sem ég spilaði ósjaldan. Ég ætla líka að gerast svo djörf og segja að þetta sé besta lagið í kvikmyndasögunni sem er samið sérstaklega sem “fictional” hittari.
2. Lenny
Ég vil meina að það sé þessum gæja að kenna hvað ég heillast alltaf af fyndna gæjanum hvert sem ég fer.
3. 60’s tískan:
Ég gerðist svo mikill lögbrjótur að taka That Thing You Do! upp á VHS úr sjónvarpinu þegar ég var 12 ára og þar sem ég á ekki videotæki í dag þá neyddist ég til að hlaða henni niður í gegnum netið. Fyrst hlóð ég niður klippingu Tom Hanks af myndinni sem er um það bil tvær klukkustundir og tuttugu mínútur…ég mæli ekki neitt sérstaklega með þeirri útgáfu af myndinni samt svo ef það eru fleiri lögbrjótar þarna úti sem hafa ekki auka fjörutíu mínútur í sólarhringnum…passið ykkur þá!
Það sem er samt áhugavert við lengri útgáfuna af myndinni er hvað Tom Hanks var greinilega ekki hræddur við að gera söguna umdeilanlega miðað við á hvaða tíma hún á að gerast, en í lengri útgáfu myndarinnar kemur fram að karakterinn hans, Mr. White, er samkynhneigður og að bassaleikarinn í bandinu er að sofa hjá svartri konu (sem var litið hornauga af mörgum í Bandaríkjunum á þessum tíma).
That Thing You Do! er fyrsta myndin sem Tom Hanks skrifar og leikstýrir og það sést á ýmsum mistökum í myndinni ef maður hefur augun hjá sér…en myndin er bara svo frábær að það skiptir engu máli. Sagan er skemmtileg og karakterarnir eru trúanlegir og fyndnir (sérstaklega Lenny). Þegar ég var yngri gat ég talað með flestum bröndörunum í myndinni og líka með ræðunni hennar Liv Tyler sem endar svo eftirminnilega með þessum orðum:
Þessi ræða var fremst í öllum ljóðabókunum mínum (já haha ég skrifaði ljóð…) og dagbókum og örugglega stílabókum líka sem ég átti á þessum tíma og mér fannst þetta bara það mest kúl sem hægt var að segja við strák ef hann myndi svíkja mann…svo var bara ennþá meira burn hvað Liv er drop dead gorgeous þegar hún segir þetta!
Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um That Thing You Do!:
- Titillagið var tilnefnt til Óskarsverðlauna og náði 41. sæti Billboard listans árið 1996.
- Bassaleikarinn (Ethan Embry) er aldrei nefndur á nafn í myndinni, í kreditlistanum er hann einfaldlega nefndur T.B. Player (The Bass Player).
- Þetta er fyrsta (og vinsælasta) kvikmyndin sem Tom Everett Scott hefur leikið í, Tom Hanks var fyrst ragur til að ráða hann af því honum fannst hann svo líkur sjálfum sér í útliti.
- Leikararnir sem leika The Wonders spila hvorki né syngja lögin í myndinni en voru samt í átta vikna æfingabúðum fyrir tökur til að læra á hljóðfærin sín svo tónleikarnir myndu sýnast raunverulegir í myndinni.
- Tom Hanks samdi byrjunarlagið í myndinni og trommusólóinn sem Guy spilar í lok myndarinnar.
- Aldursbilið á milli yngsta leikarans (Ethan Embry) sem leikur meðlim í The Wonders og elsta leikarans (Steve Zahn) sem leikur meðlim í hljómsveitinni er 11 ár.
That Thing You Do! er fullkomin helgarmynd…sérstaklega ef þið viljið vera með sama lagið á heilanum næstu tvær vikurnar!
Tinna hefur brennandi áhuga á næstum öllu en þó líklega mest á sjónvarpi og kvikmyndum, án þess þó að hafa nokkurt faglegt vit á hvorugu.
Hún er nemandi í mannfræði og starfar með náminu sem samfélagsmiðlaráðgjafi. Hún elskar allt sem kemur eldamennsku og bakstri við, og þá mest af öllu að baka íslenskar pönnukökur og að poppa örbylgjupopp. Markmið Tinnu í lífinu er að vera góð, láta gott af sér leiða og skemmta sér frábærlega á meðan.