Jæja stelpur – þá höfum við komist að niðurstöðu í Filodoro slagorðaleiknum!
Við fengum meira en 100 tillögur sendar inn og niðurstaðan varð sú að hið ofureinfalda:
“Filodoro – þú finnur muninn”
…væri besta slagorðið af því það er lýsandi og hefur flottan hrynjanda.
Gunnur Ásgeirsdóttir hjá Odda átti þessa fínu tillögu og fyrir þetta fær hún að velja sér tíu pör af sokkum og/eða sokkabuxum sem ættu að endast henni út veturinn og meira til.
Í næstu fimm sætum á eftir koma:
2. Filodoro – fyrir þær sem ganga skrefi lengra.
Sandra Ósk Sigurgeirsdóttir.
3. Filodoro fullkomnar útlitið.
Ólafía Sif Sverrisdóttir.
4. Fallegri leggir með Filodoro.
Guðrún Lilja Óladóttir.
5. Filodoro – við öll tækifæri.
Eva María Hallgrímsdóttir.
Þið heppnu skvísur fáið að velja ykkur tvenn pör af flottum sokkum, sokkabuxum, eða bæði. Við verðum í bandi!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.