Hótel Babylonstoren í Suður-Afríku er sannkallað lúxus sveitahótel
Það er gríðalega vinsælt hjá fólki sem á nóg af peningum og lifir og hrærist í viðskiptaheiminum. Þangað getur fólk farið og tekið þátt í sveitalífinu. Ræktað grænmeti/ávexti og fylgst með bústörfum ásamt því að njóta kyrrðarinnar, fegurðarinnar og hreina loftsins. Einnig er fullkominn Spa og leikfimiaðstaða fyrir þá sem vilja.
Veitingastaðurinn fyrsta flokks með topp kokkum sem elda afurðir beint af býlinu. Sannkallaður lúxus fyrir þá sem lifa venjulega alltof hratt og þurfa á hvíldinni að halda í sveitinni.
Öðruvísi hótel á gullfallegum stað, algjör snilld!
Hérna eru fleiri upplýsingar um hótelið.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.