Söngkonan Fergie og eiginmaður hennar Josh Duhamel (40) hafa eignast sitt fyrsta barn en sonur þeirra sem hefur fengið nafnið Axl Jack Duhamel fæddist 29. ágúst.
Söngkonan fór í keisaraskurð sem var fyrirfram ákveðinn og ekki er vitað hvort það var vegna erfiðleika við að fæða eða hvort hún vildi ekki ganga í gegnum fæðinguna sjálfa en það ku vera vinsælt að láta skera sig í Glysborginni til að sleppa við slit, hríðar eða önnur leiðindi. Persónulega eftir að hafa upplifað tvo keisaraskurði skil ég ekki þetta val-nema að það sé vegna þess að móðirin getur engan veginn fætt barnið (sum sé ef eitthvað er að).
Josh og Fergie hafa verið gift síðan 2009 og hafa þau beðið spennt eftir komu erfingjans undanfarnar vikur og hreiðurgerðin hefur gengið vel og allt var orðið klappað og klárt áður en að Axl fæddist.
Fergie og Josh fengu meira að segja hudahvíslara fræga fólksins Cesar til þess að leiðbeina sér og kenna hundinum að umgangast barnið þegar það kæmi í heiminn.
Pjattrófurnar bíða spenntar eftir myndum að litla krúttinu og óska þeim innilega til hamingju með frumburðinn!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig