Nú er úti veður kalt og bráðum verður allt að klessu þegar rigningin dembir sér í snjóinn en á meðan ætla ég að láta mig dreyma um frí á fallegum stöðum.
Til dæmis eins og í þessari fallegu villu sem hægt er að fá til leigu á Bali. Væri nú ekki ljómandi að skreppa með vinkonunum til Balí og leigja saman eitt svona hús sem kemur fullbúið með kokki og öllu? Eh. Jú!
Verst bara hvað þetta kostar mikla peninga en auðvitað er allt hægt ef viljinn og skipulagsgáfan eru fyrir hendi. Ef fríið er planað kannski tvö ár fram í tímann þá er hægt að skella sér í skuldlausa siglingu og koma áhyggjulaus heim.
Smelltu til að skoða fleiri myndir af þessu guðdómlega húsi sem allir geta tekið á leigu, svo lengi sem þeir eiga fyrir því. Smelltu svo HÉR til að skoða meira um þennan gististað.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.