Það getur verið gaman að leita uppi ferðamyndir á Instagram… þannig sér maður raunverulega mynd af staðnum sem maður vill forvitnast um…
… aðra vinkla og önnur sjónarhorn. Persónulegri, ekki þessa ‘túristamynd’ sem vanalega er dregin upp.
Sláir þú inn leit að blómaeyjunni #Madeira í #Portugal kemur sitthvað fallegt fram á skjáinn enda eyjan meðal fegurstu staða Evrópu. Þar skín sólin næstum allt árið og blómalífið og gróðurlífið er með ólíkindum. Eflaust algjör draumastaður heim að sækja fyrir blómakonur og pottakarla.
Hér eru nokkrar fallegar myndir af þessum heillandi stað en þær eru allar teknar af notendum Instagram forritsins. Þú getur skoðað fleiri myndi hér og látið þig dreyma og svo geturðu smellt hér og bara pantað flugið! Lestu svo meira HÉR um Madeira.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.