Ég tók andköf þegar ég sá þessar fallegu myndir af þessum yndislega fjallabæ, Veja de la Frontera sem er í Andalúsíuhéraði á Spáni.
Mig dreymir um að ferðast þangað. Hvítu húsin, þröngu hellulögðu göturnar, grænu trén… þetta er allt saman svo fallegt!
Þegar ég var lítil átt ég styttur af svona hvítum húsum og lét mig dreyma um að ég myndi eiga heima í svona húsi þegar ég yrði stór. Kannski ég muni gera það einn daginn, draumurinn er allavega jafn heitur nú og þegar ég var 5 ára.
Hvað segiði, eruði ekki til í að koma með mér þangað? Eigið þið svipaða drauma um einhvern svona stað? Það væri gaman að heyra! 🙂
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com