Taj Exotica Resort and Spa Maldives er 5 stjörnu lúxus og glamúr spa hótel á Maldíveyjunum
Þarna eru 64 lúxus smá villur, þjónar á hverju strái. Nudd og huggulegheit allsráðandi og maturinn guðdómlegur. Hvít dressaðir þjónar með fallega drykki í fallegum glösum. Ávaxtabakkar í röðum. Blágrænn tær sjórinn allt um kring, algjör draumastaður!
Já ég er alveg dolfallin yfir svona löguðu, sumarhúsum, spa hótelum og svona yndislegum sólarmyndum þessa dagana. Þrái sumarfrí eins og flest allir Íslendingar enda lifum við á einni köldustu og myrkustu eyju í heimi og veturinn er sannarlega langur hjá okkur.
Væri nú ekki ljúft að komast í svona frí? Það er líka frábært að láta sig dreyma, dreymi dreym….
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.