Draumar eru nauðsynlegir og þessi draumur er hrein dásemd!
Hótelið Mistique er staðsett Oia, á eyjunni Santorini sem tilheyrir Grikklandi. Þetta er sannkallað lúxus hótel sem aðeins bíður upp á það besta. Lúxus herbergi með útsýni yfir sjóinn.
Herbergin eru fallega innréttuð í suðrænum og léttum stíl. Hvert herbergi, eða betra að kalla það íbúð, er með nuddbaðkari, sturtu og gufuklefa. Hótelið bíður uppá átján svítur og einka villur og er einstaklega vinsælt hjá brúðhjónum. Enda algjör draumastaður með öllum helstu þægindum sem hægt er að hugsa sér.
Kíkjum á nokkrar myndir og látum hugann reika suður á bóg…
Ekta grískt umhverfi. Hvítur kalksteinn og himinbláminn yfir öllu.
Íbúðirnar eru innréttaðar í léttum og ljósum litum. Hverju herbergi fylgja nudd og ilmolíur til að auka vellíðun gestanna.
Jæja, þá er bara að byrja að safna fyrir næsta sumarfríi og smella sér til Grikklands, er það ekki bara?
Þú getur smellt hér til að komast á heimasíðu hótelsins og skoðað þennan draumastað betur.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.