ÞRÍR VINIR skruppu í ferðalag. Ferðalagið tók 44 daga, þeir fóru í 18 flug til 11 landa, horfðu á falleg útsýni, átu góðan mat frá hinum ýmsu heimshornum, lærðu sjálfsvörn, fóru á matarnámskeið og lærðu dansa…
Þessar stuttmyndir eru ótrúlega vel samansettar eftir Rick Meredi, og ekki skemmir að einn af vinunum sem sést í þeim öllum já, hann er bara nokkuð krúttlegur.
Myndböndin eru hér fyrir neðan og alveg þess virði að skoða.
[vimeo]http://vimeo.com/27246366 [/vimeo]
[vimeo]http://vimeo.com/27244727 [/vimeo]
[vimeo]http://vimeo.com/27243869[/vimeo]
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.