Tískuhús Fendi hefur gefið okkur forsmekkinn af því sem koma skal fyrir árið 2010 þegar vor og sumarlína þeirra sem hönnuð var af Karl Lagerfeld var sýnd í Paris á dögunum.
Ótrúlega töff skór, rómantísk snið án þess þó að vera væmin heldur fremur kvenleg og mjög í anda Parísarborgar -og stelpur nú þurfum við ekkert að hafa fyrir því að greiða okkur áður en við förum út í daginn bara hræra í hárinu og henda í hnút.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.