Nýverið fór í loftið glæný og gífurlega sniðug fatasíða; Fataskipti.is sem er strax að slá í gegn. Markmið hennar er að fólk geti skipt út fötunum sínum, selt þau eða keypt sér notuð/ný föt.
Fataskipti.is er einstök upp á það að gera að allir geta notað hana og stofnað aðgang sér að kostnaðarlausu. Hægt er að sjá ástand fatnaðar, verð og hvort viðkomandi vill íhuga skipti á annarri flík. Einnig er um að ræða ótrúlega hagstætt verð, og þegar komið er inn á forsíðuna er hægt að velja um að sjá kven-, karlmanns- eða barnaföt þannig að málið verður ennþá einfaldara.
Það er líka MJÖG stór plús að geta haft aðgang að stað þar sem hægt er að skipta út fataskápnum ef mann langar til þess!
Ég elska þessa síðu og hvet þig til að fara inn á hana og skrá þig! Þú finnur Fataskipti.is hér og þau eru einnig á Facebook.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com