Winter Kate heitir nýja fatalína gellunar Nicole Richie. Winter Kate línan er alveg eins og Nicole Richie sjálf, hippaleg, “seventís”glamrokkleg og stelpuleg.
Nicole Richie hefur dregið sig aðeins úr sviðsljósinu undanfarið, bæði út af því að nú er hún komin með bæði mann og tvö börn og svo hefur hún augljóslega verið að einbeita sér að einhverju sniðugu eins og skartgripa- og fatahönnun.
Mjög góð breyting að mínu mati, hún var orðin hálf þeytt og sjúskuð í þessu Paris Hilton djamm rugli.
Ef að ykkur finnst glam-rokk í bland við hippakjóla og munstur flott þá er þessi lína nákvæmlega allt það.
Bless gamli Nicole Richie stíllinn, reynum að gleyma honum alveg (gular og svartar hárlengingar, stutt gallapils og magabolur) –Hæ Winter Kate!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.