Rauði dregillinn á Óskars- og Emmy verðlaununum gefur stjörnunum tækifæri til að fara í sitt fínasta púss og þær keppast um að vera í flottasta og eftirminnilegasta kjólnum.
…en því miður eru það oft kjólarnir sem eru ósmekklegastir sem verða eftirminnilegastir.
Þetta ár fannst mér hvítir og ljósir kjólar vera áberandi fallegastir. Hér er sýnishorn af þeim fallegustu en margir hverjir myndu sóma sér vel sem brúðarkjólar…
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.