Hæhæ ég er ný Pjattrófa og heiti Stella Björt , hlakka til deila mínum tískukornum með ykkur 🙂
“One shoulder” kjólar hafa alltaf heillað mig – jafnvel þó þeir séu bara svartir og plain þá eru þeir alltaf smart og sérstaklega á sumrin í fallegum sumarlitum.
Ætla pottþétt að splæsa í einn slíkann fyrir sumarið. Ég fann hér nokkra fallega kjóla , langar sérstaklega í þennan með snákamynstrinu, finnst hann geðveikur !
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.