Nú fagna sennilega margir karlar og einhverjar konur líka – Scarlett Johansson er á lausu!
Þessi undurfallega manneskja er að skilja við kyntröllið Ryan Reynolds. Persónulega finnst mér Scarlett eiga betra skilið en hann. Hún er svo náttúrulega falleg, ólík hinum Hollywood bombunum.
Scarlett hefur m.a verið andlit Dolce and Gabbana í smekklegum og fallegum auglýsingum.
Ég hef séð myndir af Scarlett með alla mögulega háraliti og hún púllar þá alla!
Þessi 26 ára snót með brosið sem bræðir hvaða karl sem er hefur leikið í hverri myndinni á fætur annarri að undanförnu og má meðal annars nefna Vicky, Cristina, Barcelona og He’s just not that in to you.
Scarlett er góð fyrirmynd, alltaf glöð, engin horrengla, heilbrigð sál í hraustum líkama eins og einhver myndi segja. Flottur kvenmaður hún Scarlett Johanson.
Nokkrar myndir af þessari fínu leikkonu:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.