Nú ætla ég að taka smá hliðarskref og deila persónulegri myndum en vanalega hér á Pjattinu, af Instagram.
Ég hef notið lífsins í botn hér á námstímanum í Barcelona ásamt því að hafa flakkað hingað og þangað síðastliðna mánuði. Auðvitað fylgir þessu flakki að birta reglulega myndir á Instagram. Lífið, í myndum:
París – Ó elsku París… kaldir en góðir dagar þar í nóvember
Reynt að finna jólaskapið á jólamarkaði með jólakaffið við höndina – Katalóníubúar hafa verulega skrítna jólasiði en skemmtilegir eru þeir markaðirnir!
Quality time eins og hann gerist bestur… Kaffibolli við hverfiskirkjuna, sjálfa Sagrada Familia
Camp Nou
Afmælisdagar verðskulda mimosu og pönnukökur í morgunmat!
Festival í Sitges er eitthvað sem ég mæli hiklaust með – Aðal partýið á þessu svæði! Neymar og við vinkonurnar vorum þar.
Katy Perry er magnaður performer – ég er ekki einu sinni aðdáandi, en vá!
Á Spáni er Sangria eðlilegur lunch! Ekkert að afsaka…
Að hjóla um borgina er æðislegt!
London calling… vopnuð sjálfu stöng og við öllu viðbúin!
Svona ættu allir mánudagar að vera!
Látum þetta nægja í bili
Þér er velkomið að fylgjast með: @eydishalldorsdottir
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com