Evan Rachel Wood og Jamie Bell eru að skilja eftir aðeins tveggja ára hjónaband.
Talsmaður parsins staðfesti þetta og sagði að þetta hefði verið sameiginleg ákvörðun.
„Þau elska hvort annað og bera mikla virðingu fyrir hvort öðru,“ sagði talsmaðurinn.
„Þetta var sameiginleg ákvörðun og þau ætla að halda áfram að vera vinir.“
Wood og Bell giftu sig í október árið 2012 og eiga tæplega eins árs gamlan son.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.