Íslandsvinkonan, stórstjarnan og fatahönnuðurinn Eva Mendes er í viðtali við tímaritið Lucky í októbermánuði og er jafnframt forsíðustúlka þess tölublaðs.
Eva lagði mikið á sig til þess að komast í karakter fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni “For The Place Beyond The Pines”. Hún æfði extra mikið og varð frekar horuð í kjölfarið en hún þurfti að vera það til þess að geta sýnt réttan karakter í þessu hlutverki. Eva segir að mamma hennar sé stöðugt að skamma hana fyrir að vera of horuð en leikkonan segir einnig að hún geri ALLT fyrir gott kvikmyndahlutverk og sé til í að leggja töluvert mikið á sig.
Eva borðar hollan mat. Hún borðar þó hvorki rautt kjöt eða kjúkling en viðurkennir fúslega að henni finnist fátt betra en að næla sér í köku í kúbverska bakaríinu sem er í nágrenni við hana í Los Angeles. Að mínu mati hefur Eva alltaf verið hrikalega flott, hún er með brjóst, mjaðmir og flottar línur án þess að vera bara skinn og bein.
Leikkonan er orðin fatahönnuður og segir að það sé mömmu sinni og frænkum að þakka að hún ákvað að fara að hanna föt en þær hvöttu hana eindregið til þess.
Eva er með flottan fatastíl og segir að þegar manni líði illa þá sé nóg að fara í fínasta kjólinn sinn, þannig verði dagurinn allt annar.
Hún segir einnig að réttu fötin séu lykilatriði til að láta sér líða vel en þú þarft einnig að vera sátt við sjálfa þig, það sé númer 1, 2 og 3!
Eva segist ekki endilega alltaf vera að leitast eftir að klæðast merkjafötum en hún elskar að komast í ódýr og flott föt sem allar konur hafa efni á.
Þegar kemur að því að ræða samband hennar og Ryan Gosling þá segir hún að blaðamaðurinn meigi alveg spyrja hana út í það en hún muni ekki svara spurningum sem tengjast sambandi hennar.
Töff stelpa sem veit hvað hún vill!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig