Eva Longoria hefur gjarnan verið talin með þeim heitustu í glysborginni og tímaritið Maxim ákvað að útnefna hana konu ársins!
Eva er alsæl með titilinn og segir að hún sé mjög ánægð að hreppa hann með tilliti til þess hversu langt síðan sé að hún birtist fyrst á forsíðu tímaritsins en það styttist í fertugsaldurinn hjá dömunni.
Eva segir einnig að þegar fólk kynnist henni að þá finnist því mjög skrýtið hversu húsleg hún sé. Að eigin sögn elskar hún að elda og finnst fátt fallegra en heimili sem búið er að nostra við. Hún segist oftar en ekki vera bakandi heima hjá sér með svuntu og hveiti í hárinu, þannig að svona forsíðumyndir séu bara eitthvað sem sé búið til fyrir forsíðuna sjálfa, hún sé í raun og veru ekki þessi glamúrtýpa.
Eva segist hafa verið kamelljón í skóla og náð að vingast við alla, hvort sem þeir voru í stærðfræðiklúbbnum eða vinsælu krakkarnir. Hún var líka klappstýra OG í skólahljómsveitinni sem þykir mjög sjalfgæft á USA mælikvarða.
Það geislar alltaf af Evu þegar maður sér hana í fjölmiðlum og það er greinilegt að hún er með báða fæturna á jörðinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig