Eins og sést þá erum við Pjattrófur mikið fyrir pjatt og falleg undirföt eru ekki undanskilin í pjattinu.
Því þótti mér vel til fundið að birta þessar myndir sem ég rakst á af leikkonunni Evu Longoria Parker úr hinum sívinsælu Desperate Housewives þáttum.
Eva var fengin til að pósa fyrir karlaritið GQ magazine sem er gefið út í flestum löndum – en þessar myndir voru teknar fyrir Mexico. Hér má sjá Evu pósandi í ótrúlega kúl og flottum svörtum undirfötum.
Daman er greinilega í toppformi hefur ekkert slegið af þrátt fyrir aldur og fyrri störf hugar vel að líkama sínum og eiginmaðurinn hennar Tony Parker er ekki óheppinn gaur.
.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.