Samkvæmt vinum Chris Martin og Gwyneth Paltrow vill Chris fá Gwyneth aftur.
Eftir tilfinningaþrungna endurfundi í Chateau Marmont nýlega grátbað Chris hana um að gefa sér annað tækifæri.
Gwyneth sagði ekki já, en hún sagði ekki heldur nei.
„Gwyn elskar ennþá Chris. Hún vill samt sem áður fá tíma til að ákveða hvort þau eigi framtíð saman,“ sagði heimildarmaður.
Heimildarmenn segja að þau tvö hafi eytt miklum tíma saman undanfarið vegna barna sinna og að þeim hafi aldrei komið betur saman en nú.
Ekki er langt síðan þau hjónakornin ákváðu að skilja.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.