Brightening Touch Targeted Corrector er nýr hyljari frá L’Occitane en hyljarinn er hluti af nýju línunni frá þeim fyrir augnsvæðið.
Mjög einfalt er að nota hann en hann kemur með þægilegum bursta á endanum sem auðveldar nákvæma ásetningu.
Burstinn er bæði mjúkur og þægilegur en hann er mjög áþekkur hinum fræga Touche Eclat frá YSL.
Með því að nota hyljarann felur þú dökka bauga með einni stroku. Nauðsynlegt amk tvisvar yfir daginn hjá konu með fullt af gæludýrum og börnum!
Hann virkar líka fullkomlega til að lýsa upp dökk svæði og sem ‘high lighter’ á valin svæði.
Allir andlitsdrættir verða meira áberandi og fallegri ef maður gerir þetta, til dæmis meðfram nefinu, á hökunni og við útlínur vara.
Þá er best að nota hann eftir að þú ert búin að setja farðann á þig. Bara rétt rennir burstanum meðfram nefinu og kringum varalínuna og svæðin lýsast upp á náttúrulegan hátt.
Nauðsynleg nýjung í snyrtibudduna frá merki sem kemur sífellt á óvart og slær alltaf í gegn.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.